Basar félagsins verður 20 nóvember kl. 14:00-17:00 í Friðarsetrinu Holti í Önundarfirði. Hér má sjá sýnishorn af þvi sem í boði verður. Þar verður í öndvegi íslenska ullin okkar. Handunnir jóladúkar sem kvenfélagskonur hafa komið saman til að þæfa og skreyta og íslensk jólaepli úr ull. Við erum líka búnar að prjóna úr ullinni, húfur, vetlinga og sokka. Úr leðri og roði verða belti, armbönd og nælur. Úr perlum og hrauni, skartgripir og merkinælur fyrir prjónakonur. Margt fl. fallegt handverk verður til sölu. Að auki verður ýmislegt matarkins eins og sultur, smákökur, rúgbrauð.