El Melrose (ElMelrose) avatar
 
Myndir af íbúðinni ATH. 2 BLS. af myndum

Íbúðin er alls 113 m² , með þar af ca. 35 m² solariumi, einkaverönd á þakinu, og svölum á 2.hæð.
Í íbúðinni er svefnaðstaða fyrir 6, fyrir 4 í tvíbreiðum rúmum í herbergjum á efri hæðinni, og svo fyrir 2 í 120cm breiðum, góðum svefnsófa, í litlu herbergi á neðri hæðinni. Einnig er barnarúm fyrir ungabarn. 2 baðherbergi eru í íbúðinni og loftkæling í svefnherbergjunum á efri hæðinni og í stofunni á neðri hæðinni. Íbúðin leigist með öllum húsgögnum og húsbúnaði, þvottavél, rúmfötum, handklæðum, sólbekkjum, garðhúsgögnum o.þh. Einnig erum við núna komin með þráðlaust internet í íbúðina.

Íbúðin er á endanum í öðru raðhúsinu, í litlum þægilegum 2ja raðhúsa garði. Aðeins 11 íbúðir eru í þessum garði, með sameiginlega sundlaug, og eru margar þeirra í eigu Íslendinga. Sundlaugin er staðsett í miðjum garðinum aðeins örfáa metra frá stofuhurðinni þannig að auðvelt er að fylgjast með börnunum í garðinum, sem er afgirtur með læstum hliðum, þannig að þau geta ekki hlaupið neitt í burtu.

Leiguverðið yfir sumartímann er aðeins 49 Þúsund ísl.kr. fyrir vikuna og eru innifalin þríf á íbúðinni í leigulok og notkun á loftkælingum og interneti.

Og með þessu ódýra flugi sem er orðið til Alicante núna...

þá er þetta mun ódýrara en að vera á hóteli með fjölskylduna... og mun þægilegra, að hafa svona íbúð út af fyrir sig, fullbúið eldhús, garðhúsgögn, sundlaug og sína eigin sólbekki, engin slagsmál um þá á morgnana :)


Miðað er við leiguverð pr. viku en leigutími getur verið hvernig sem er...frá 1 degi upp í nokkra mánuði

Leiguverð yfir vetrartímann er mun lægra, 25þúsund ísl.kr. vikan, en hægt er að hafa íbúðina allt frá 1-2 vikum upp í nokkra mánuði.


í íbúðinni eru einnig alvöru íslenskar dúnsængur og hitarar svo þægilegt sé að vera í henni yfir háveturinn...


Sumartími : 15.maí - 15. September
Vetrartími: 15. september - 15.maí




Beint flug er til Alicante allt árið

www.heimsferdir.is
www.icelandexpress.is
www.plusferdir.is
www.sumarferdir.is


Endilega hafið samband

Helga og Ægir
Eskifirði
s: 862 1525
helga_ragnh@hotmail.com

Sími okkar á Spáni : 00 34 656 93 16 04
ef það næst ekki í okkur í íslenska símann...

Album was created 7 years ago and modified 3 years 11 months ago
 
Myndir af nágrenninu og bænum Torrevieja ATH. 3 bls.

Sumarhúsið er í La Florida hverfi við bæinn Torrevieja,á Costa Blanca ströndinni á Spáni, sem er vinsæll sumarleyfisbær meðal íslendinga og annarra, ca. 45 km frá Alicanteflugvelli, en þangað er flogið beint frá flestum ferðaskrifstofunum nokkrum sinnum í hverri viku, þær bjóða upp á mjög ódýr flugsæti þangað.


www.heimsferdir.is
www.plusferdir.is
www.icelandexpress.is
www.sumarferdir.is


Íbúðin er vel staðsett og aðeins í nokkur 500 metra fjarlægð frá stórri matvöruverslun,
banka, miklu úrvali fjölbreytilegra veitingastaða, s.s. steikhúsa, kínverskra staða, indverskra, hefðbundinna spænskra staða og fjölda annarra og úrvali af þægilegum skemmtistöðum og börum. Göngufæri er á góðan markað sem haldinn er alla Laugardaga,
og ca. 2,5 km eru eftir veginum niður að strönd. Stutt er í miðbæ Torrevieja, þar sem er mikið líf alla daga og öll kvöld, götumarkaður alla daga við höfnina og þar við er tívolí öll kvöld, mikið af fólki og margir góðir veitingastaðir. Strætó gengur úr hverfinu niður í bæ. Flestir kjósa þó að hafa bílaleigubíl á meðan þeir dveljast á svæðinu, til að geta skoðað sig um í nágrenni bæjarins. Bílaleigubíla er oft hægt að panta með fluginu á netinu, og svo eru bílaleigurnar með heimasíður þar sem hægt er að panta bíl áður en maður fer út.
mæli með
www.victoriacars.com - ódýrir

og svo eru líka bílaleigurnar:
Europa
Centauro
Hertz
Lara Cars
o.fl.

Í bænum Torrevieja er mikið úrval ýmiskonar verslana við allra hæfi, Ný stór og góð verslanamiðstöð Habaneras, með Zara, H&M, Bershka, Intersport, Puma, C&A, Stradivarius, Jack & Jones, Mango, Etam, Womens secret, mörgum skóbúðum o.fl. o.fl. Flottur vatnsrennibrautagarður Aquapolis, keiluhöll, bíó, margir alþjóðlegir veitingastaðir s.s. Kentucky, Burger King,
McDonalds o.fl.

Það er hægt að hafa það alveg eins og maður vill þarna, ef maður vill er hægt að slappa vel af og hafa það rólegt og notalegt, og ef menn vilja þá er nóg hægt að gera, mikið af skemmtistöðum, börum og nokkur risadiskótek o.þ.h. t.d. Pacha og KKO, eru í bænum sjálfum. Í næsta hverfi við La Florida hverfið, Villa Martin (golfvallahverfinu) eru 3 mjög vinsælir 18 holu golfvellir.
Heimasíður nokkurra golfvallanna á svæðinu:
www.golfvillamartin.com
www.lomasdecampoamor.com
www.golframblas.com


Í næstu bæjum og borgum eru margar stórar verslanamiðstöðvar, og dýragarðar, skemmtigarðar og ýmislegt fleira til að skoða. Spænskt mannlíf, gamalt rómverskt hringleikahús í Cartagena o.fl o.fl. Allar upplýsingar um það, kort og leiðbeiningar að ýmsum stöðum, eru í íbúðinni.

Hægt er að sjá meira um bæinn t.d. inn á http://www.torrevieja.com



Album was created 7 years ago and modified 5 years 1 month ago
Advertise on Fotki
AD
Advertise on Fotki