Akureyri
Fullkomin helgi! Við Hjördís og Gulla skelltum okkur til Önnu á Akureyri og var planið að fara á skíði í Hlíðarfjalli. Við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum; færið var fullkomið, veðrið frábært og mjög fáir á skíðum. Skelltum okkur síðan líka á Sálina í Sjallanum - þeir klikka nú seint! Algjörlega frábær helgi :)