| | | | -
Söldenferð 2007 -
skelltum okkur 16 saman í Skíðaferð til Sölden. Skemmst frá því að segja að veðrið og færi var mjög gott og mikið djammað og skíðað !!!!! Frábær ferð - Album was created 4 years 11 months ago and modified 4 years 11 months ago
-
| | | -
Dimmitering 2005 -
Er aðeins að missa mig hérna í myndastuði !!!! ýkt gaman. Annars eru þetta nú ekki margar myndir sem ég tók, en ansi skemmtilegar, það er skemmst frá því að segja að þetta varð ansi skrautlegur dagur. Var í útkalli langt fram á nótt og mætti svo í morgunmat upp í skóla í mínu fínasta pússi kl 08:00. Um hádegi tók svo við dimmiteringin og fórum svo út að borða um kvöldið og kíktum aðeins á djammið. - Album was created 4 years 11 months ago and modified 4 years 11 months ago
-
| | | -
Verslunarmannahelgi 2006 -
Leiðin lá norður sprengisand og niður í Eyjafjörðin, með smá sundlaugarstoppi í Laugafelli. Svo var haldið áfram í Ásbyrgi þar sem farið var á tónleika með Sigurrós í snilldarveðri. Næst var stefnan svo tekin á Akureyri, sem endaði í rólegheitarkvöldi hjá mér og Elvari vegna veikinda. Ýmislegt fleira var svo brallað áður en haldið var til baka suður Sprengisand og gist á leiðinni - Album was created 4 years 11 months ago and modified 4 years 11 months ago
-
| | | -
Fjallabjörgunarnámskeið -
Laugardaginn 14 apríl tókum við stefnuna á Þingvelli þar sem stefnan var að hanga í spottum það sem eftir lifði dags, undir leiðsögn Atla Pássonar !!! Nóttinni var svo eytt í vellystingum í Þristi og vel sofið þrátt fyrir háfaðarok og slyddu. Á sunnudeginum brunuðum við svo í bæinn og æfðum börusig í Öskjuhlíðinni. Það er skemmst frá því að segja að þetta var alveg hreint frábær helgi !!! - Album was created 4 years 10 months ago and modified 4 years 10 months ago
-
| | | -
Nemendasýning -
Nemendasýningar hjá JSB 2007 í Borgarleikhúsinu, svaka stuð og fullt af flottum dönsum!!! - Album was created 4 years 9 months ago and modified 4 years 9 months ago
-
| | | -
Hvítasunnan 2007 -
Skrapp í fjölskylduferð í Skaftafell á föstudagskvöldinu og fór með gamla settinu á Hrútfjallstinda á laugardeginum, frábær ferð í alla staði, þó að við hefðum nú ekki fengið útsýni á toppnum !!! En það gefur bara tilefni til að fara aftur (: Þegar ég kom til baka var Elvar svo auðvita komin til mín!! Getur ekki án mín verið þessi elska. Kíktum á Seljavelli til Sonju og Sigursveins á sunnudeginum og á mánudeginum komum við svo við í Skarfanesi og hittum þar eitthvað hjálparsveitarlið áður en við brunuðum svo í bæinn!! - Album was created 4 years 9 months ago and modified 4 years 9 months ago
-
| | | | | |